PDA

View Full Version : Kveikti í húsi Tælenskrar eiginkonu



~°2012°~
01-14-2009, 04:01 PM
Fjöldi fólks sem er af erlendu bergi brotið býr í leiguherbergjum á efri hæð hússins við Tryggvagötu 10 sem kveikt var í laust eftir klukkan eitt í dag. Þá er rekinn markaður í bílskúr á fyrstu hæð. Stúlka sem opnaði fyrir brennuvargnum slapp ómeidd út en að öðru leyti var húsið mannlaust. Jökull Gíslason varðstjóri hjá lögreglunni segir manninn hafa hringt dyrabjöllu og þegar táningsstúlka í húsinu opnaði ruddi hann henni til hliðar og kastaði frá sér logandi sígarettu. Sjónarvottar sem voru að störfum í bílskúr á neðri hæðinni heyrðu sprengingu og óp skömmu áður en eldurinn blossaði upp.

Maðurinn var handtekinn fjörutíu mínútum eftir að eldurinn kom upp en eiginkona hans kvartaði við lögreglu oftsinnis í gær vegna hótana hans um íkveikju. Lögreglan hafði tvívegis afskipti af honum í gær en handtók hann ekki. Jökull Gíslason segir að málið hafi verið í vinnslu en lögreglan geti ekki vaktað alla menn og öll hús á öllum tímum.

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/01/14/kveikti_i_husi_eiginkonunnar/