PDA

View Full Version : Kína og Ísland!



Jötunspor
11-26-2011, 08:53 PM
Huang Nubo er hættur við fyrirætlanir sínar um fjárfestingar á Íslandi. Talsmaður Huangs á Íslandi segir að hann ætli sér ekki að reyna að hnekkja niðurstöðu íslenska ríkisins, en segir jafnframt vonbrigði að ákvörðunin hafi verið algjörlega einhliða án nokkurrar tilraunar til samningaviðræðna.

„Hans viðbrögð eru þau að ef íslensk lög eru þannig að þau heimili ekki fjárfestingu hans hér á landi þá er það bara þannig og hann unir þeirri niðurstöðu. Hann mun ekki sækja breytingu á því, en þar með eru skilaboðin þau að það er ekki rými fyrir fjárfestingu hans á Íslandi,“ segir Halldór Jóhannsson arkitekt og talsmaður Huangs.

Aðspurður hvort ekki komi til greina af hálfu Huangs að leita annarra lausna, s.s. með minni umsvifum, segir Halldór að hann muni ekki eiga frumkvæði að því. „Ég held að það séu eðlileg viðbrögð að það sé ekki hans að sækja það. Hann lagði upp í upphafi drög að samstarfssamningi milli fyrirtækis síns og ríkisins þar sem hann bauð upp á samráð, en viðbrögð við því voru núll. Þar var meðal annars sagt að hann væri tilbúinn að afsala sér vatnsréttindum og gera hluta af jörðinni að þjóðgarði, en við þessu fengust engin viðbrögð.

http://mbl.is/frettir/innlent/2011/11/26/huang_nubo_er_haettur_vid/


Og þeir láta eins og þetta sé slæm ákvörðum tekin af pólitíkus með "þjóðrembu". Guði sé lof fyrir slíka "þjóðrembu". Það virðist sem það sé ennþá til von fyrir þessa þjóð. Sjáum hvað Svíar hafa fengið út úr viðskiptum sínum við Kínverja:



Það er víðar á Norðurlöndum en á Íslandi sem Kínverjar láta að sér kveða. Kínverjar eru nú fjölmennasta innflytjendaþjóðin í Danmörku utan Evrópusambandsins. Í Svíþjóð hafa framkvæmdir kínverskra auðmanna vakið verðskuldaða athygli.

Sunnan við Gävle í Upplöndum hafa Kínverjar reist mikla ferðamanna- og menningarmiðstöð sem kallast Dragon Gate. Þar eru hótel og veitingahús, kínverskt torg og skóli í kínverskri bardagalist, safn með eftirlíkingum af her leirhermanna sem eru með þekktustu fornminjum í Kína og gríðarmikil stytta af gyðjunni Guanyin.

Áætlun er um að reisa Dragon City kínverska borg í nágreninu. Dregist hefur að opna hótelið þar sem það stenst ekki bygginarreglugerðir. Þá hafa Kínverjarnir brotið sænska vinnulöggjöf og hefur verið gert að greiða 1,1 milljón sænskra króna í sektir.

Byggt hefur verið án heimildar og launasamningar hafa ekki verið gerðir við kínverska starfsmenn. Dargaon Gate-húsin hafa verið valin verst byggðu hús í Svíþjóð.

Þá situr borgin Kalmar í Smálöndum í Svíþjóð uppi með tugmilljóna króna ógreiddar skuldir eftir að þangað kom Kínverjinn Jinxing Luo og byggði 70 000 fermetra verslunar- og sýningahöll fyrir um eitt þúsund kínversk fyrirtæki sem átti að verða miðstöð viðskipta milli Evrópu og Kína.

Verkefnið átti að skapa 800 ný störf fyrir íbúa Kalmar, en þessi miklu húsakynni standa nú tóm. Kínverjinn Luo er sagður hafa átt erfitt með að flyta fé frá Kína. Vinnueftirlitið stöðvaði verkið þar sem ekki var farið eftir lámarksöryggiskröfum og í ljós kom að kínverskir verkamenn fengu laun langt undir lögboðnu lágmarki.

http://www.ruv.is/frett/umdeildar-fjarfestingar-kinverja